Smáratorgi turn
Smáratorgi turn

LML
Lögmenn

Löginnheimtuþjónusta

Reynsla og fagmennska

LML lögmenn ehf. veita alhliða þjónustu á sviði löginnheimtu. Með löginnheimtu er átt við innheimtumeðferð á grundvelli réttarfarslaga og felur í sér að úrræðum réttarkerfisins er beitt við innheimtu vanskilakrafna.

Lögmenn félagsins hafa áratuga reynslu af innheimtu vanskilakrafna og kappkosta við að veita trausta en sáttamiðaða þjónustu, allt eftir þörfum og kröfum kröfuhafa.

Sérhæfð þjónusta

LML lögmenn sérhæfa sig í löginnheimtu og tengdum lögfræðilegum verkefnum. Sérþekking, fagmennska og skilvirk vinnubrögð eru leiðarljós í allri þjónustu okkar.

Traustur samstarfsaðili

LML lögmenn leggja mikla áherslu á að veita vandaða þjónustu, reglulega upplýsingagjöf og lausnir sem taka mið af þörfum og hagsmunum umbjóðenda.

Skilvirk löginnheimta

Með markvissum vinnubrögðum og skilvirku innheimtuferli vinna LML lögmenn að því að hámarka endurheimtur, stytta innheimtutíma og gæta hagsmuna umbjóðenda.